U are at Joey's

Joe's zone

15.10.2006 17:52:31 / joi_svan

Áfall dagsins!!!!!!!!!!!!

Þeir hræðilegu atburðir áttu sér stað í fyrradag sem mun rista djúpt í sálarlíf mitt það sem eftir er, en ég var eitthvað að breyta stillingum hérna á síðunni minni og allt í lagi með það, fór svo ekkert á síðuna mína í 2 daga eftir það, en var að kíkja á hana núna og mér til mikillar skelfingar þá er hún BLEIK:evil: Ég var að sýna hörpu inn á minni síðu hvernig hún getur breytt síðunni sinni í bleika og gleymdi að breyta henni aftur til baka með þeim afleiðingum að hún var bleik í 2 daga, sem sagt er búin að vera hommi í 2 sólarhringa eða svo.....aaaaaaaarrrrrrrrrrgggggggggg............en maður lærir af mistökum eins og einhver góður maðurinn sagði, og lova ég sjálfum mér að þetta komi ekki fyrir aftur! Mest var ég samt hissa að ágæta systir mín kommentaði á síðuna mína án þess að minnast á þennan ógeðslega bleika lit. En nú er þetta komið í lag sem betur fer og prísa ég mig sælan af þessum breytingum. En gott fólk kveð að sinni, tjjáaaa...........


» 16 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 13:14:22 / joi_svan

ótrúlegur anskoti........

ég þekki strák nokkurn sem hefur oft drukkið 0.5 liter af bjór á 3 sekúndum, en það kemst ekki nærri því hvað þessi gaur getur!  3 lítrar af bjór á 10 sekúndum takk fyrir

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=191991


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 23:18:30 / joi_svan

Dagurinn í dag!

Jæja góðir netfíklar, hvað segiði í dag? Nú er ég að pæla í að hætta að koma með þessi ljótu myndbönd enda orðið frekar súrt og loðið. Já ég sit nú hérna að lesa lögfræði en það er próf hjá mér 21 næstkomandi sem ég verð að ná, ef ekki get ég alveg eins farið að selja vetrarúlpur á mallorka:S  Já hversdagsleikinn er að drepa mann og manni langa stundum bara til að gera eitthvað mikið af sér til að lífga upp á tilveruna, ekki bara sömu rútínuna alla daga sem er að hugsa um mat , lögfræði og fara í ræktina!:)  Mér er líka farið að langa pínu lítið að komast heim á norðurslóðir í smá tíma en það mun væntanlega gerast eftir 21.október, maður er alveg hættur að djamma og stunda óheilbrigt líferni sem eru bæði kostir að gallar við. Já í gær fórum við, ég, harpa og dóri á leik íslands og svíþjóðar á laugardagsvellinum, þar sem svíar mörðu sigur 2-1 en um 9þúsund manns voru á vellinum, og studdu okkar menn sem spiluðu fínan bolta og voru óheppnir að jafna ekki í restina! Já heyrðu ég fór á texas chainsaw massacre um daginn og já þetta er hinn mesti viðbjóður og enginn furða að hún sé bönnuð innan 18ára, en næstu myndir sem ég ætla pottþétt að sjá eru jackass 2, borat, Roal Casino(james bond, og fleiri myndir, alveg ótrúlegt hvað eru að koma marrgar góðar myndir núna á næstunni! Já jæja ætla að fara að horfa á imbann og þið bara haldið áfram að vera þið og enginn annar vona ég , en við heyrumst síðar bless!!!!!!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 13:29:35 / joi_svan

family guy atriði

http://www.kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&id=2538

annars hef ég ekkert meira til á málanna að leggja veriði sæl


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.09.2006 18:02:54 / joi_svan

Kolaportið!!!!!!! The world of endless trash!

Viti menn ég lét plata mig í kolaportið í dag:o en ég er alveg full viss um það að þar hef ég ekki farið í allavega 10ár eða meira, man þegar maður var bara smá gutti með mömmu að skreppa í kolaportið! En allavega þá er þetta heil veröld af alls djööfff...............drasli og fann ég ekkert við mitt hæfi nema á einum bás þar sem seld er allskonar herdót og föt og endaði ég með því að kaupa mér alvöru Bandarískan herhjálm! ánægður með það! svo skrapp á þennan fiskmarkað sem er þarna og kom ´mér á óvart hvað var mikið úrval af allskonar fiski og sjávarfangi sem gerði mig bara helvíti svangann!    En það er beðið morgundagsins með mikilli eftirvæntingu því 2 stórleikir í enska! man utd og arsenal, og liverpool - chelsea, þannig að það verður þvílík veisla!

Er einhver sem þorir að spá um árslit morgundagsins?


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 22:12:33 / joi_svan

eitthvað alveg mjög fyndið!

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=183242

það má alveg gráta af hlátri af þessu, þurfið ekkert að skammast ykkur fyrir það!


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 21:54:06 / joi_svan

kæra dagbók!

jæja þá er skólinn byrjaður og strax nóg að gera, en þar sem ég er nú ekki þolinmóðasti maður í heimi þá varð ég að verða brjálaður í morgun þegar ég var á leiðinni úr mosó inn í rvk, lagði af stað 7:40 og var kominn 8:20, en venjulega þegar umferðin er bara venjuleg þá er maður svona korter, en það var allt stopp í morgun og kallinn notla hoppandi brjálaður í bílnum að verða of seinn í tíma, en þetta er eitthvað sem maður á eftir að venjast og læra inn á! Já eins og venjulega þá ætla ég að kasta á ykkur einu myndabandi og í þetta skiptið er það ekkert ógeðslegt heldur fyrir fótboltaáhugamenn, en þeir sem er ekki búnir að sjá þetta mark hjá meistara ronaldinho viljiði gjöra svo vel og horfa á þetta eitt flottasta mark allra tíma, mig langaði bara að gráta þegar ég sá það!:(

blesss í bili

http://www.kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&id=2486


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 12:03:43 / joi_svan

Halló ég er á lífi

jæja hef nú ekki bloggað í dágóðan tíma en ég er bara kominn suður núna fyrir fullt að allt og er að fara að byrja í HÍ eftir nokkra daga í lögfræðinni! En mig langaði að kasta á ykkur einu góðu myndbandi. Ekki fyrir viðkvæmar sálir;) svo verði ykkur að góðu bless í bili

http://www.69.is/openlink.php?id=15413


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 23:26:26 / joi_svan

6.júní

jæja þá er maður búin að horfa á þessa blessuðu bubbatónleika á stöð 2, hefði alveg viljað vera þarna í laugardalshöllinni, alveg 3 tíma pakki, þetta var alveg góð skemmtun að horfa á og flott að sjá hvað bubbi kóngur getur enn þó aldurinn sé orðinn hálf öld takk fyrir, en já nú eru bara 6 dagar í það að maður verði í köben að drekka bjór og hafa það gott, djöfull hlakka ég til, já og bara 3 dagar í mestu fótboltaveislu í heimi eins og þeir segja á sýn HM 2006, er að pæla í því að skreppa frá danmörku yfir til þýskalands þar sem allt gameið er!     En já gott fólk ef þið sáuð eða fóruð á þessa tónleika þá væri gaman að heyra og fá smá komment en ég kveð í bili tjáá........!

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 15:43:38 / joi_svan

júní

jæja það er komið sumar maður, og ég bloggaði einhverntíman síðast fyrir mánuði eða eitthvað, en já það er margt í gangi hjá manni núna, fór að veiða um helgina sem var helvíti fínt, fékk 2 sæmilega, svo fórum við jón helgi, eiður og bjarni niður eyjafjarðará á gúmmíbátum sem var nokkuð sem maður hefur ekki gert áður:)   já já svo er maður að fara núna 12.júní til Danaveldis, það verður helvíti magnað, gott að komast aðeins af klakanum þó það sé sumar:)   er að pæla í að breyta útliti síðunnar, hún er helvíti drungaleg, en allavega kveð ég að sinni, sjáumst!

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 18:47:03 / joi_svan

blliiiiiiizzzzzzzzzzzzzaður!

jæja það voru misgóðar undirtektir við þessu myndbandi sem mér fannst mjög áhugavert að setja fram hérna handa fólki, en jæja þið um það, minn félagi dóri var sá eini sem var að fíla þetta,enda svo sem bjóst ég líka við því frá litla blóðhundinum honum dóra hehe:haha:  en já ég fór í bíó um daginn á myndina Hills have eyes og ég verð nú bara að segja þó sé nú ekki viðkvæmur þá rekur þessi mynd algjörlega smiðhöggið, þvílýkur viðbjóður á köflum, hvað fær menn til að gera svona myndir?????????8|  ég myndi samt giska peninganna vegna hehe er þaggi?  En já það var farið á Pál Óskar í gærkvöldi og bara nokkuð mikið stuð á palla eins og venjulega, strákarnir voru í bjórkynningu og læti og komu svo hingað heim í partý og má segja að það hafi verið misjafnt ástandið á mönnum og fer ég ekkert nánar út í það hehe:lol:   en já ég farin að kjafta hérna út í eitt eins og versta kjaftakelling þannig að ég bara segji see'a fuckers!

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 19:54:14 / joi_svan

hvað er að gerast?

jahérna ég bara veit ekki hvað kom yfir mig allt í einu því ég rambaði hérna í tölvunni minni á síðu sem er víst síðan mín8|  já held ég sé að verða eitthvað súrrandi geðveikur, ég að blogga! já heyrðu hvað á maður að segja ykkur gott, jú síðusta páskar voru bara fínir, við harpa fórum suður til tengdó sem var helvíti næs.... kíktum á djammið og svona! já svo núna upp á síðkastið hefur maður farið í held ég 3 fermingarveislur og étið eins og mér einum er lagið þó ég segji sjálfur frá:lol:  já nú er fótboltinn kominn á fullt hjá manni og bara um 2 vikur í fyrsta leik og er maður svona að komast í fínt form myndi ég segja! En já nú er kominn minningarsíða um hann Tómas heitinn vin minn og verð bara segja að þetta sé góð síða og mun vonandi verða stærri því nóg er um hann Tomma að skrifa um!:) En já endilega þá vill ég benda fólki á ekki útiloka þessa síðu þó viðhaldið sé ekki upp á 100% því ég er svo skemmtilegur:haha:

» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Minn kæri Tómas Ýmir